Þjónusta

Yddarinn vinnur á einfaldan hátt: Þú fyllir út þjónustubeiðni sem þú finnur undir liðnum Panta og tilgreinir hvers kyns þjónustu þú vilt fá.

Microsoft Word er uppáhalds ritvinnslutólið og í því er að finna textatæki sem heitir „Track Changes“ eða „Fylgjast með breytingum“. Þú færð skjalið til baka með öllum breytingum rækilega merktum (og stundum rökstuddum) og getur þannig sjálfur metið hvort breytingarnar eru til batnaðar eða ekki. Þegar upp er staðið er textinn þinn – Yddarinn gefur bara yfirvegað álit, enda er smekkur manna misjafn svo ekki sé meira sagt.

Þegar unnið er með heimasíður nægir að senda slóðina og tilgreina hvort lesa á yfir allar undirsíður.

Ekki hika við að senda fyrirspurn. Öllum texta er tekið fagnandi, enda er drifkrafturinn á bakvið Yddarann kærleiksrík afskiptasemi – hann þolir ekki opinberan og illa gerðan texta…

lina

LYKILORÐ: Þjónusta, vinna, beiðni, Word, ritvinnsla, textatæki, rök, texti, yfirvegun, álit, heimasíða, lestur, fyrirspurn