Af hverju?
Texti er meira en texti er meira en texti. Við hugsum í orðum, tjáum okkur í orðum – þau liggja allstaðar til grundvallar. Allur heimurinn er bundinn í tungumálið og við komumst ekki framhjá því. Fólk hefur misgott vald á tungumálinu. Sumir eru alvarlega lesblindir eða lélegir í stafsetningu. Margir geta tjáð sig bærilega vel. Nokkrir eru meistarar í tungumálinu. Og örfáir eru stórskáld sem virðast einfaldlega anda frá sér meistaraverkum í texta. En allir mega við því að fá álit annars aðila þegar kemur að lokaskilum á texta – jafnvel stórmeistarar gerast blindir á eigin misfellur og mistök. Texti er gljúpur og lúmskur. Ef þú þarft að senda frá þér texta getur Yddarinn komið til hjálpar, gert hann betri, breytt málfari, lagað stafsetningu – náð að koma betur í orð því sem þú ert að hugsa.
Og þá skiptir engu hvort um er að ræða námsritgerð, ástarbréf, uppsagnarbréf, heimasíðutexta, ljóð eða annarskonar skáldverk – orð eru orð eru orð.
![]()
LYKILORÐ: Texti, lestur, orð, tungumál, ástarbréf, skáldverk, ritstjórn, ritstýring, stafsetning, lesblinda, stórskáld, málfar